Patrick Pedersen til Vals

Valur hefur fest kaup á danska framherjanum Patrick Pedersen. Patrick sem er 22 ára spilaði síðari hluta síðasta tímabils með Val við góðan orðstír, samningurinn er til þriggja ára.

Það er mikil tilhlökkun hjá Völsurum að sjá Patrick í rauðu treyjunni í næstu umferðum Pepsi deildarinnar. Patrick er þegar kominn með leikheimild og er því löglegur í næsta leik félagsins gegn Fram á mánudagskvöld.