Uppskeruhátíð yngri flokka í handbolta og körfubolta

Föstudaginn 23.maí munu yngri flokkar Vals í hand- og körfubolta halda upp á lok tímabilsins 2013-14.  Handboltinn hefur gamanið með uppskeruhátíð á milli 16:00 og 17:00 og í kjölfarið munu iðkendur úr körfuboltanum fagna lokum vetrar og munu þau vera frá 17:30 til 19:00.

fjörið fer fram í Veislusölum 1 og 2 og verða léttar veitingar á staðnum í boði foreldraráða flokkanna. við hvetjum alla foreldra og iðkendur til að mæta á svæðið.