Valur á leik í Borgunarbikarnum

Eftir 1-1 jafnteflið á Samsung vellinum við Stjörnuna í síðustu viku byrjar Borgunarbikarinn að rúlla. Meistaraflokkur karla í knattspyrnu mætir núna Víði í leik sem fer fram á Nesfisk-vellinum í Garði. Leikurinn hefst klukkan 19:15 þann 27.maí.

Við hvetjum alla Valsara að mæta á völlinn og styðja við bakið á strákunum okkar!

Áfram Valur!