Lokahópur U-18 ára landsliðs karla

Valin hefur verið lokahópur U18 ára landsliðs karla í handknattleik sem tekur þátt í lokakeppni Evrópumeistaramótsins sem fram fer í Póllandi dagana 14.-24.ágúst. 

Valur á tvo fulltrúa í þessum hóp og það eru þeir Sturla Magnússon og Ýmir Örn Gíslason. við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með áfangann.