Fótbolti: Sigurður Egill Lár inn í U21

5.9.2014

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingu á hópnum sem mætir Frökkum í lokaleik liðsins í undankeppni EM. Sigurður Egill Lárusson úr Val kemur inn í hópinn. Íslenska liðið á ennþá möguleika á því að komast í umspil fyrir úrslitakeppnina 2015 en Frakkar hafa þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og þar með sæti í umspili.  Við óskum Sigurði og liðsmönnum hans góðs gengis í leiknum.

 

500w.jpg

Mynd:  Ingólfur Hannes Leósson

tekin af fotbolti.net