2. fl. kk: Stórleikur á Vodafone-velli

6.09.14

Á morgun, sunnudag, taka strákarnir í 2. flokki á móti Fjölnismönnum á Vodafone-vellinum klukkan 16.00.

Valur situr í 9. sæti A-deildarinnar með 17 stig þegar tveimur umferðum er enn ólokið. Fjölnir er í 10. sæti með 16 stig. Tvö lið falla úr þessari tíu liða deild og því er ljóst að hart verður barist um stigin þrjú á morgun.

Hægt er að skoða stöðuna í A-deildinni með því að smella hér.

Valsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á Vodafone-völlinn á morgun og styðja strákana til sigurs. Þeir þurfa á stuðningnum að halda.