Íþróttaskóli Vals hefst í fyrramálið!

Íþróttaskóli Vals byrjar í fyrramálið, laugardaginn 20.september og byrjar skólinn kl. 9:45 ATH.

Foreldrar eru sérstaklega hvattir til þess að vera mættir tímanlega með börnin svo að þau geti kynnst nýjum aðstæðum o.fl.


Í upphafi tímans er létt spjall þar sem allir eru saman en svo er börnunum skipt í hópa. Gott er að muna í hvaða hópi sitt barn er.
Fyrstu tímana geta hóparnir breyst sökum þess af oft fjölgar í skólanum.

Hægt er að skrá börn á síðunni https://valur.felog.is/

Eins minnum við á fésbókarsíðu Íþróttaskólans þar sem upplýsingar um skólann koma reglulega inn. Um að gera að gera "like" á síðuna.

Við sjáumst í fyrramálið kl. 9:45 stundvíslega.

Kveðja

Starfsfólk Íþróttaskólans
itrottaskolivals@gmail.com