Þór Hinriks áfram hjá Val

03.10.2014

Knattspyrnufélagið Valur og Þór Hinriksson hafa komist að samkomulagi um að Þór muni stýra meistaraflokki kvenna í knattspyrnu hjá Val næstu 3 árin. Þór tók við þjálfun liðsins um mitt sumar og mun halda áfram þeirri uppbyggingu sem í vændum er á Hlíðarenda. Valskonur stefna á toppbaráttu næsta sumar og er markmiðið að styrkja liðið í bland við að byggja upp á ungum og efnilegum valsstelpum.