Donni kveður Val

Knattspyrnufélagið Valur og Halldór "Donni" Sigurðsson hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu að rifta samningi á milli aðila. Donni hefur undanfarið árið verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla auk þess að sjá um séræfingar á vegum félagsins við góðan orðstír.

Valsmenn þakka Donna kærlega fyrir samstarfið og óska honum jafnframt velfarnaðar í störfum sínum í framtíðinni.