Enn einn Valsarinn snýr heim - Ólafur Brynjólfsson þjálfar Mfl.kvenna í knattspyrnu með Þór Hinrikssyni

Ólafur Tryggvi Brynjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá meistaraflokki kvenna í Val og myndar því frábært teymi með Þór Hinrikssyni.  

Ólafur er fæddur árið 1975, hóf sinn meistaraflokksferil með Val árið 1993, þá einmitt með Sigurbirni Hreiðarssyni og fleiri "gömlum" kempum. Ólafur lék alls 24 leiki með Val, en á alls 65 meistaraflokks leiki að baki.

Árið 2004 hóf Ólafur sinn þjálfaraferil einmitt með meistaraflokk kvenna hjá Val þar sem hann aðstoðaði Elísabetu "Betu" Gunnarsdóttur. Því má sannarlega segja að Ólafur sé að snúa heim. Auk Vals hefur Ólafur þjálfað Augnarblik og síðustu fjögur árin stýrði hann liði Gróttu við góðan orðstír. 

Ólafur er mikill Valsari, Knattspyrnufélagið Valur er ánægt með að hafa tryggt sér starfskrafta hans.