Jólatónleikar Valskórsins

Jólatónleikar Valskórsins verða haldnir sunnudaginn 14. desember kl. 16:00 í Friðrikskapellu að Hlíðarenda.

Á dagskránni eru íslensk og erlend jólalög og er dagskráin að venju fjölbreytt og skemmtileg. Auk þess verður hlutavelta í hléi með glæsilegum vinningum.

Stjórnandi er Bára Grímsdóttir og Sunna Gunnlaugsdóttir sér um undirleik.

Miðaverð er 1.000 kr og frítt fyrir 12 ára og yngri.

Valsarar nær og fjær hvattir til að mæta!