Íþróttalið Reykjavíkur árið 2014

Valsstelpurnar sem hafa verið flaggskip félagsins undanfarin ár fengu enn ein verðlaunin í dag, þegar þær voru valdar íþróttalið Reykjavíkur 2014. Stelpurnar urðu Íslands- og bikarmeistarar í ár og eru vel að þessu komnar. Árangur stelpnana er ótrúlegur á síðustu árum en samtals hafa komið 17 titlar hjá þeim á síðustu sex árum. Við óskum stelpunum og Stefáni innilega til hamingju.

 

handb kvk lið ársins.jpg