Íþróttamaður Vals 2014

Kl.12 á gamlársdag fer fram, venju samkvæmt, val á Íþróttamanni Vals. Þetta er 22 skipti sem að valið fer fram og hvetjum við Valsara til að fjölmenna á Hlíðarenda og fá sér kaffi, kakó og kökubita.

Þetta er orðin árviss hefð og gaman að sjá hversu margir mæta á ári hverju. Síðan er tilvalið að fá sér göngutúr í Fjósið og versla flugelda fyrir kvöldið.

Hlökkum til að sjá alla Valsara unga sem aldna.