Valur á 11 fulltrúa í kvennalandsliðum Íslands sem æfa um helgina

Um helgina fara fram landsliðsæfingar hjá kvennalandsliðum Íslands, allt frá A-hóp niður í U-17. Það er ánægjulegt að geta greint frá því að alls eru 11 leikmenn Vals valdir í þessa hópa. Það eru sannarlega kynslóðaskipti í kvennaboltanum, mikið af ungum og virkilega spennandi leikmönnum að stíga upp og því er framtíðin björt. ValurFótbolti óskar öllum landsliðkonum Vals góðs gengis á æfingum um helgina.
A-landslið
Dóra María Lárusdóttir
Málfríður Erna Sigurðardóttir
U-23 Landslið
Elín Metta Jensen
Hildur Antonsdóttir
Katrín Gylfadóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir
Þórdís María Aikman
U-19 Landslið
Málfríður Anna Eiríksdóttir
U-17 Landslið
Harpa Karen Antonsdóttir
Hlín Eiríksdóttir
Ísold Kristín Rúnarsdóttir