Skráningar á sumarnámskeið Vals 2024 hefjast sumardaginn fyrsta. Boltaskólar Vals fyrir hádegi og Sumarbúðir í borg eftir hádegi.
Nú um mánaðarmótin komu inn félagsgjöld í heimabanka félagsmanna Vals. Tekið skal fram að um valgreiðslu er að ræða og eru gjöldin rukkuð í gegnum Abler. Félagsmenn sem hafa tök á eru hvattir til að leggja félaginu lið með því að greiða greiðsluseðilinn sem veitir þeim aðgang að aðalfundi Vals sem verður haldinn í maí 2024.
Knattspyrnufélagið Valur óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna endurnýjunar á lýsingu á æfingavelli félagsins við Hlíðarenda í Reykjavík. Í verkinu felst hönnun, útvegun, uppsetning og fullnaðarfrágangur á nýrri LED flóðlýsingu ásamt ljósamöstrum.
Árskortin eru mætt og á 50% afslætti til 23. mars. Smellið á frétt til að næla í ykkur í Árskort.
Körfuknattleikssamband Íslands birti á dögunum æfingahópa fyrir yngri landslið sambandsins. Eftirfarandi fulltrúar Vals hafa verið valdir til áframhaldandi æfinga yngri landsliða KKÍ 16.-18. febrúar nk. Smelltu á fyrirsögn til að skoða nánar.
Lesa meira