Gæðahandbók BUS - Foreldrahluti

 Foreldrahluti.jpg

Smelltu hér til að skoða foreldrahluta gæðahandbókar barna- og unglingasviðs

Foreldrastarf

Starfslýsing foreldraráða

  • Foreldraráð er tengiliður milli iðkenda, foreldra, þjálfara og yfirþjálfara. Talsmaður  foreldraráðs er jafnframt tengiliður við yfirmann barna- og unglingasviðs félagsins.
  • Í upphafi hvers starfsárs, að hausti skulu foreldrar skipa a.m.k. þriggja manna foreldraráð í hverjum yngri flokka félagsins (iðkendur undir 16 ára)
  • Foreldraráð sinnir mikilvægum verkefnum við undirbúining mótahalds, fjáraflanir og önnur verkefni fyrir viðkomandi flokk.
  • Foreldraráð skal hafa náið samstarf við þjálfara flokksins vegna leikja og keppnisferða.
  • Foreldrar skulu að öllu jöfnu kosta ferðir og uppihald á óopinber mót og skal foreldraráð skipuleggja fjáraflanir til að létta róðurinn við að standa straum af kostnaði.
  • Foreldraráð skal skipuleggja allar styttri ferðir flokka á Íslandsmót og æfingamót í samvinnu við þjálfara. Reynt verði að koma því við að ferðast á einkabílum á leiki sem eru í 100 km (fram og tilbaka) fjarlægð frá Reykjavík.
  • Foreldraráð skal virkja sem flesta foreldra til starfa fyrir flokkinn, því margar hendur vinna létt verk.

Góð ráð til foreldra

"Hvað ungur nemur, gamall temur"

Sem foreldri getur þú tekið þátt í því að gera íþróttir barna og unglinga að eftirminnilegri og jákvæðri reynslu. Hér eru nokkrar ábendingar sem vert er að gefa gaum.

  • Komdu á æfingu eða á leiki þegar þú getur. Það virkar hvetjandi fyrir barnið líka þegar það eldist.
  • Hrósið öllum iðkendum meðan á æfingum eða leik stendur, ekki aðeins dóttur þinni eða syni.
  • Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs, ekki gagnrýna.
  • Berið virðingu fyrir störfum þjálfarans, ekki reyna að hafa áhrif á störf hans á meðan á leik stendur.
  • Dómarinn á að gæta að öryggi barnanna, dæma leikinn sanngjarnt eftir bestu getu og stuðla að ánægjulegum leik fyrir börnin. Ekki gagnrýna ákvarðanir hans.
  • Hafið áhrif og hvetjið börnin til þátttöku, íþróttir eiga að vera skemmtilegar.
  • Spyrjið hvort leikurinn eða æfingin hafi verið skemmtileg eða spennandi, úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
  • Sýnið starfi félagsins virðingu. Verið virk á foreldrafundum þar sem umræður fara fram um þjálfun og markmið félagsins, þar er ykkar vettvangur.
  • Mundu að það er barnið þitt sem er þátttakandi í íþróttum - ekki þú. Sumum foreldrum hættir til að gleyma því.
  • Standið saman um fjáraflanir og félagstarf í yngri flokkunum.
  • Leggið ykkar að mörkum til að íþróttaiðkun barna ykkar verði raunveruleg forvörn gegn hvers kyns vá.