"Ég sé mig sem senter". Sveinn Aron Guðjohnsen skrifar undir samning við knattspyrnudeild Vals.

Knattspyrnumaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen, fæddur 1998, hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Vals. Samningurinn gildir út árið 2018. Sveinn Aron, líkt og faðir hans og afi, mun því spila með Valsmönnum í efstu deild karla.

Sveinn Aron Guðjohnsen er sóknarmaður að eigin sögn en hefur spilað á kantinum hjá HK á þessari leiktíð. Sveinn hefur spilað 10 mfl.leiki með liðinu og skorað í þeim 5 mörk. Sveinn skoraði mark fyrir HK í leik liðsins í þessari viku.

Sveinn Aron hefur leikið níu landsleiki með U-17 og skorað 1 mark. Þá hefur hann leikið þrjá U-19 leiki og skorað 1 mark.  Koma Sveins Arons í Val eru mikil gleðitíðindi.