YNGRI FLOKKAR VALS |
BARNA & UNGLINGASVIÐ
Æfingatöflur yngri
flokka
Skráning & ráðstöfun frístundastyrks
fer fram á
-
Greiðsla æfingagjalda er forsenda fyrir þátttöku á æfingum og
mótum á vegum félagsins.
-
Öllum iðkendum er heimilt að koma og prófa í nokkur skipti áður
en gengið er frá skráningu,
-
Skráning og greiðsla æfingagjalda þarf að klárast fyrir fyrsta
mót vetrar eða sumars.
- Til að iðkendur geti tekið þátt á mótum á vegum félagsins yfir
sumartímann þurfa þau að vera skráð á sumartímabilið sem er frá
júní og út ágúst.
- Foreldrar eru beðnir um að virða ofangreint.
- Smelltu hér til að sjá leiðbeiningar um hvernig þú
greiðir æfingagjöldin
Rútuferðir frá
frístundaheimilum
Valur býður foreldrum barna, sem hefja æfingar á milli
kl.15:00-15:50, upp á að sækja börnin í frístundaheimilin í
hverfinu. Félagið gerir þetta í góðu samstarfi við
frístundaheimili Háteigsskóla, Austurbæjarskóla, Hlíðaskóla og
Ísaksskóla. Þjónustan hefur mælst mjög vel fyrir hjá foreldrum og
hefur félagið merkt aukningu á íþróttaiðkun þeirra yngstu.
Foreldrar greiða hluta af kostnaði við ferðirnar sem innheimtist
einu sinni á hvorri önn. Börnunum er ekki ekið
tilbaka í frístundaheimilin að æfingu lokinni og því þurfa
foreldrar að sækja þau í Valsheimilið að lokinni æfingu.
Rútuferðirnar eru einungis í boði fyrir börn í 1.-4. bekk. Ef
þið viljið nýta þessa þjónustu vinsamlegast skráið
barnið á skráningasíðunni okkar https://www.sportabler.com/shop/valur.
Ef barn er að fara á æfingu sem hefst klukkan 14:30-15:00 þá
er það fyrri ferð en ef æfing hefst klukkan
15:30-15:50 er það seinni ferð.
Nánari upplýsingar veitir íþróttafulltrúi
Vals
Louisa Christina á Kósini
Sími: 414-8005
Netfang: louisa@valur.is
Skrifstofa Vals er opin frá klukkan 09:00 - 16:00 alla virka
daga.