Knattspyrnudeild Vals semur við landsliðskonu frá Mexíkó

Valur hefur samið við Anisa Raquel Guajardo 26 ára gamlan sóknarmann frá Mexíkó og mun hún leika fyrir Val í Pepsi - deild kvenna á á komandi tímabili. Anisa er fjölhæfur sóknarsinnaður leikmaður sem hefur spilað 13 leiki fyrir landslið Mexico og skorað í þeim 4 mörk. Á síðasta ári spilaði Anisa fyrir lið Melbourne City í Ástralíu þar sem hún varð Ástralskur meistari með liðinu. Úlfur Blandon þjálfari Vals er ánægður með komu nýja leikmannsins. " Þetta er fjölhæfur sóknarsinnaður leikmaður sem getur spilað í öllum fremstu stöðum vallarins. Hún er flinkur leikmaður með mikinn hraða, sterk maður á mann og með gott auga fyrir spili. Við vonumst að sjálfsögðu til þess að hún komi til með að styrkja frábæran hóp Vals næsta sumar". 

Anisa kemur til Íslands þann 1.mars n.k.