Eygló og Hlín með U17 til Austurríkis

Jörundur Áki Sveinsson þjálfari U17 ára landsliðs kvenna valdi á dögunum 18 manna hóp  sem leikur tvo vináttuleiki við Austurríki 7. og 9. mars næstkomandi. 

Í hópnum eru tvær stelpur úr Val Eygló Þorsteinsdóttir og Hlín Eiríksdóttir en æfingar fyrir ferðina fara fram helgina 3-5. mars. 

Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis í Austurríki.