Valur - ÍBV, þriðjudag kl. 19:30

Það er skammt stórra högga á milli hjá karlaliði Vals í handbolta sem tryggði sér sæti í undanúrslitum áskorendakeppni EHF um helgina með glæsilegum þriggja marka sigri á Sloga Pozega í seinni leik liðanna. 

Á morgun þriðjudag, fær liðið Eyjamenn í heimsókn í lokaleik deildarkeppninnar klukkan 19:30 í Valshöllinni.

Valur.is hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs.