Valur - FH, leikur 2 í dag kl. 14:00

Úrslitaeinvígi Vals og FH í Olís-deild karla í handknattleik heldur áfram í dag þegar liðin mætast í Valshöllinni að Hlíðarenda. 

Valur leiðir einvígið 1-0 eftir fjögurra marka sigur í fyrsta leik liðanna sem fór fram í Kaplakrika s.l. miðvikudagskvöld. 

Leikurinn í dag hefst kl. 14:00 og hvetur Valur.is stuðningsmenn til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs.