Valur Íslandsmeistari í handbolta 2017

Valur tryggði sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í eftir glæsilegan sigur á FH-ingum í hreinum úrslitaleik sem fór fram í Kaplakrika. 

Jafnræði var með liðunum í fyrrihálfleik þar sem heimamenn frá Hafnarfirði leiddu lengst af með tveimur mörkum. Valsarar hrukku hins vegar í gang í seinni hálfleik og var varnarleikur liðsins nær óaðfinnanlegur með funheitan Sigurð Ingiberg í rammanum. 

Leiknum lauk á endanum með frábærum 7 marka sigri og voru leikmenn og aðstandendur liðsins að vonum kampakátir í leiks lok. Handknattleikslið félagsins er nú handhafi tveggja stærstu titla á landinu, Íslands- og bikameistara. Til hamingju Valsarar - nær og fjær!