Pálmar Ragnarsson er genginn í raðir Vals

Pálmar Ragnarsson hefur gert þriggja ára samning við körfuknattleiksdeild Vals. Pálmar þjálfar yngstu iðkendur félagsins, bæði stúlkur og pilta, og kemur að uppbyggingu körfuknattleiks hjá Val næstu árin. Hann hefur getið sér gott orð sem þjálfari yngri flokka undanfarin 12 ár.

Pálmar hefur haldið fyrirlestra á vegum KKÍ um aðferðir sínar í samskiptum við börn og unglinga í þjálfun og verið áberandi í átaki ÍSÍ og UMFÍ sem nefnist "Sýnum karakter". Það er Valsmönnum mikið fagnaðarefni að fá Pálmar til félagsins. Hann hefur unnið frábært starf fyrir körfuknattleik á Íslandi og er einstök fyrirmynd fyrir yngri iðkendur. Nálgun hans við þjálfun barna og fagmennska hans gagnvart iðkendum og foreldrum er einstök og til mikillar fyrirmyndar og í fullu samræmi við gildi Vals og hugsjónir.

Pálmar segist hlakka til að mæta á Hlíðarenda og kynnast fólkinu í Val, bæði börnum og foreldrum: "Ég elska að þjálfa körfubolta, það er það skemmtilegasta sem ég geri. Þess vegna er ég gríðarlega spenntur fyrir því að takast á við nýja áskorun á nýjum stað. Markmið mitt er að það verði virkilega gaman fyrir börn að æfa körfubolta í Val og að allir njóti sín á æfingum óháð getu. Valur er frábært félag með mikla sögu og það er tær snilld að fá að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem mun eiga sér stað á næstu árum."

Valur.is býður Pálmar hjartanlega velkominn til félgsins og óskar honum velfarnaðar í starfi - Áfram Valur