Sjö Valsarar í æfinghóp U17 í handbolta

Heimir Ríkarðsson hefur valið tvo hópa fyrir verkefni sumarsins en liðið tekur þátt í European Open í Svíþjóð í byrjun júlí og Ólympíuhátið Evrópuæskunnar í lok júlí.

Sitthvor hópurinn verður sendur á mótin með von um að skapa sem mesta breidd í aldurshópnum. Hóparnir æfa saman í Digranesi helgina 9. - 11. júní og eru 7 Valsarar þar á meðal. Það eru þeir Arnór Snær Óskarsson, Eiríkur Þórarinsson, Tjörvi Týr Gíslason, Tumi Steinn Rúnarsson, Stiven Tobar Valencia, Úlfar Páll Monsi Þórðarson og Viktor Andri Jónsson.

Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.