Hlín, Stefanía og Eygló í æfingahóp U19

Þórður Þórðarson þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum 26 manna æfingahóp sem mun koma til æfinga 3.-5. nóvember næstkomandi. 

Í hópnum eru þrjár Valsstelpur, þær Hlín Eiríksdóttir, Stefanía Ragnarsdóttir og Eygló Þorsteinsdóttir. Valur.is óskar stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.