Auður Sveinbjörnsdóttir með U17 sem mætir Skotum

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 ára kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum 18 manna hóp sem mætir Skotlandi í tveimur æfingaleikjum dagana 4. og 6. febrúar. 

Í hópnum er Valsarinn Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving og óskar valur.is henni til hamingju með valið og góðs gengis í leikjunum.