Margrét Lára og Elísa framlengja við Val

Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur skrifuðu í dag undir nýjan samning við Knattspyrnufélagið Val.

Þær hafa verið að vinna sig til baka úr meiðslum sem þær urðu fyrir á síðasta ári og hafa æft vel í vetur enda íþróttakonur í fremstu röð og metnaðarfullar.

Ekki þarf að fjölyrða um knattspyrnuhæfileika þeirra enda eru þær lykilleikmenn Vals og landsliðsins og eru öflugir liðsmenn, leiðtogar og frábærar fyrirmyndir fyrir það frábæra knattspyrnustarf sem unnið er að Hlíðarenda.

Til hamingju Valsmenn!