Uppskeruhátíð 5. 4. og 3. fl í knattspyrnu

Uppskeruhátíð 5. 4. og 3. fl í knattspyrnu

Uppskeruhátíð verður haldin fyrir iðkendur í 5. 4. og 3. flokk karla og kvenna fyrir tímabilið 2017-2018 þriðjudaginn 18. september klukkan 17:00.

5. flokkur - Börn fædd 2006-2007

4. flokkur - Börn fædd 2004-2005

3. flokkur - Börn fædd 2002-2003

Uppskeruhátíðin er haldin fyrir bæði iðkendur og foreldra sem eru sérstaklega hvattir til að mæta.

 

Dagskrá:

17:00 Uppskeruhátíðin opnuð, iðkendur og foreldrar boðnir velkomnir

17:05 Farið yfir starf flokkanna yfir tímabilið og viðurkenningaskjöl veitt.

17:30 Veitingahlaðborð að hætti Valsmanna (umsjón í höndum foreldra - sjá nánar að neðan)

 

Veitingaskipulag - Upplýsingar

5. flokkur kv koma með niðurskorið grænmeti / ávexti

4. og 3. flokkur kk koma með brauðmeti

4. og 3 flokkur kv kemur með kökur/bakkelsi

5. flokkur karla er í veitingastjórn og kemur með drykki (djúsþykkni / mjólk). Veitingastjórnin sér um að taka á móti veitingum og passa að þær séu smekklega framsettar. Veitingastjórnin sér einnig til þess að gengið sé frá eldhúsi og sal að lokinni dagskrá.