Coca Cola bikarinn: Selfoss - Valur, mánud. 18. feb. kl. 20:15 (Forsala miða í Valsheimilinu Vals)
Valur heimsækir Selfyssinga í átta liða úrslitum Coca-Cola bikarsins mánudaginn 18. febrúar í Hleðsluhöllina klukkan 20:15.
Í húfi er sæti í final four sem fara fram í Laugardalshöll helgina 8. -9. mars.
Forsala miða fer fram í Valsheimilinu sem hér segir:
- Föstudaginn 15. febrúar 09:00-16:00 á skrifstofu Vals
- Laugardaginn 16. febrúar 09:00-18:00 í anddyri (sjoppa)
- Sunnudaginn 17. febrúar 09:00-17:00 í anddyri (sjoppa)
- Mánudaginn 18. febrúar 09:00-16:00 á skrifstofu Vals
Miðaverð er 1.500 krónur fyrir 17 ára og eldri.