Kiana Johnson í gengur til liðs við Val

Valur skrifaði um helgina undir samning við Kiönu Johnson um að leika með liðinu á komandi tímabili í Dominosdeildinni. Kiana lék með KR á síðustu leiktíð og var með 23,2 stig, 10,4 fráköst, 7,3 stoðsendingar og 3,4 stolna bolta að meðaltali í leik.

Darri Freyr um Kiönu: "Við erum full tilhlökkunar við að bæta Kiönu í hópinn. Hún er leikmaður sem við þekkjum vel eftir að hafa leikið 9 leiki við KR liðið á síðustu leiktíð þar sem hún gerði okkur lifið leitt. Kiana mun leika lykilhlutverk á báðum endum vallarins og vonandi hjálpa okkur í áttina að frekari velgengni."

Kiana um Val: "Ég er full tilhlökkunar að spila með Val í vetur. Ég þekki liðið og stelpurnar nokkuð vel enda spilaði ég við þær mörgum sinnum á síðasta tímabili. Eins og hópurinn lítur út og þær stelpur sem hafa bæst við er ég sannfærð um að við getum náð góðum árangri í vetur."