Pepsi Max deild kvenna: Breiðablik - Valur, sunnudag kl. 19:15
Valur sækir Breiðablik heim í sannkölluðum stórleik sunnudaginn 15. september í næstsíðustu umferð Íslandsmótsins.
Það er ljóst að úrslit leiksins munu hafa umtalsverð áhrif á hvort liðið muni hampa sjálfum titlinum því aðeins eru tveir leikir eftir á mótinu.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og hvetjum við stuðningsmenn til að fjölmenna og styðja við bakið á stelpunum sem hafa staðið sig frábærlega í sumar.
Pepsi Max deildin | Breiðablik - Valur
- Sunnudaginn 15. september
- Kópavogsvöllur kl. 19:15
- Allir á völlinn!