Yngri flokkar: Æfingar fimmtudaginn 9. janúar
Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag fimmtudaginn 9. janúar. Í tilkynningu frá almannavarnarnefnd er ekki talin þörf á að foreldrar og forráðamenn sæki börn fyrir ákveðinn tíma heldur er lögð áhersla á að börn yngri en 12 ára gangi ekki ein heim heldur verði sótt í lok skóla eða frístundarstarfs.
Innanhúss æfinga hjá yngri flokkum Vals verða því samkvæmt æfingatöflum í dag og mun Valsrúta ganga samkvæmt áætlun og sækja iðkendur í körfubolta og handbolta.
Fótboltaæfingar hjá 12 ára og yngri (5. og 7. flokkur) falla hins vegar niður vegna veðurs og fara fótboltaiðkendur í 1-4 bekk ekki í rútuna. Æfingin hjá 8. flokki karla sem er inn í Valsheimilinu heldur sér.
Þjálfarar hjá 3. og 4. fl. karla og kvenna í fótbolta munu meta hvort hægt verði að æfa seinnipartinn þegar líða tekur á daginn - Upplýsingar verða sendar á iðkendur í gegnum sportabler fyrir þá flokka.
Yfirlýsingu almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins má sjá hér:
Gul viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu í dag og eru foreldrar og forráðamenn beðnir að sækja börn sín í lok skóla eða frístundastarfs í dag fimmtudag.
Börn eru óhult í skóla og frístundastarfi þar til þau verða sótt.
Hér er átt við börn yngri en 12 ára.
English version:
A yellow weather warning has been issued for the greater Reykjavík area today. Parents and guardians of children younger than 12 years old are asked to pick up their children at the end of the school day or after-school programs.