Valsblaðið 2020

 Valsblaðið árið 2020 er komið út - Fyrsta Valsblaðið kom út í janúar 1939 en ritstjóri þess og ábyrgðarmaður var Sigurður Ólafsson. Hann og Frímann Helgason sáu um greinaskrif og báru hitann og þungan af útgáfunni árum saman.

Valsblaðið er ómetanleg heimild um starfsemi félagsins og gefur innsýn í helstu málefni og áherslur Vals á hverjum tíma, sigra utan vallar sem innan og tíðarandann.

Af ýmsum ástæðum var útgáfa blaðsins stopul eftir 1940 en það var endurvakið með krafti 1958. Frá árinu 1983 hefur Valsblaðið komið út árlega og nú er 72. tölublaðið komið út undir styrkri ritstjórn Guðna Olgeirssonar en hann hefur ritstýrt Valsblaðinu í tæpa tvo áratugi.

Smelltu hér til að skoða Valsblaðið 2020

Forsíða.png