Thea gengur til liðs við Val

Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir hefur skrifað undir samning við Val sem gildir út tímabilið 2024.

Thea kemur til liðsins frá Aarhus í Danmörku en hún lék áður með Oppsal HK í Noregi og Fylki hér heima. Thea hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands ásamt A-landsliðinu undanfarin ár en hún er fædd árið 1997.

"Thea er góð viðbót við okkar leikmannahóp. Hún getur bæði leikið sem skytta og horn ásamt því að vera góð í vörn. Hún er á góðum aldri með fína reynslu en um leið getur ennþá bætt sig sem leikmaður" sagði Ágúst þjálfari liðsins við undirskriftina í gær.

Við bjóðum Theu velkomna í Val og óskum henni velfarnaðar á vellinum. 

Mynd gæti innihaldið: 1 einstaklingur