Aldís, Fanney, Hildur og Katla í æfingahóp U17

Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari U17 kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum leikmannahóp sem kemur til æfinga dagana 22. - 24. febrúar næstkomandi. 

Í hópnum eru fjórar stelpur úr Val, þær Aldís Guðlaugsdóttir, Fanney Inga Birkisdóttir, Hildur Björk Búadóttir og Katla Tryggvadóttir. 

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.