Ída, Ólöf, Arna og Auður í æfingahóp U19

Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 ára kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum leikmannahóp sem kemur saman til æfinga dagana 22. - 24. febrúar næstkomandi.

Í hópnum eru fjórar stelpur úr meistaraflokki Vals, þær Ída Marín Hermannsdóttir, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, Arna Eiríksdóttir og Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving. 

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.