Johannes Vall gengur til liðs við Val

Knattspyrnudeild Vals og Johannes Vall hafa komist að samkomulagi um að Johannes leiki með félaginu.

Þessi öflugi vinstri fótar leikmaður sem er fæddur 1992 hefur leikið um 80 leiki í Allsvenskan efstu deild Svíþjóðar og í kringum 90 leiki í næstefstu deildinni Superettan.

Alls hefur hann spilað vel yfir 200 leiki í Svíþjóð á undanförnum árum og á að baki landsleiki með yngri landsliðum Svíþjóðar.

Það er frábært fyrir Val að fá þennan öfluga leikmann í félagið, bjóðum Johannes Vall velkominn á Hlíðarenda.