Úrslit Borgunarbikars kvenna

Sæll Gunnar nú er úrslitaleikur í bikarnum n.k laugardag hvernig er stemmingin í hópnum ?
Stemningin í hópnum er mjög góð. Liðið er fullt tilhlökkunar og getur ekki beðið eftir að fá að njóta leiksins. Að Spila bikarúrslitaleik eru forréttindi og ætlum við að njóta hverrar mínútu
Hvernig metur þú líkurnar á sigri Valskvenna ?
Líkurnar eru góðar fyrir bæði lið eins og í öllum fótboltaleikjum. Við munum mæta á völlinn full sjálfstrausts. Valsliðið stefnir að sjálfsögðu á sigur og ég býst passlega við því að Stjarnan geri það líka.
Nú eru Stjörnustúlkur núverandi íslandsmeistarar hvernig metur þú þær ?
Stjarnan er með gríðarlega gott lið, stóran hóp og margar reyndar stelpur. Þær hafa tjaldað miklu til og keyptu nýverið nokkra útlendinga sem styrkja þeirra hóp mikið. Stjörnuliðið er baráttulið og fara langt á henni ásamt reynslu sinni.
Hvernig er staðan á þínum hóp ?
Staðan er mjög góð. Hópurinn hefur minkað töluvert og yngri stelpur tekið við stærri hlutverkum í liðinu. Dagný og Thelma eru báðar farnar út í skóla og Johanna er farinn í sænsku úrvalsdeildina. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir ungt og gott valslið til þess að sýna hvað í okkur býr og hvað við erum tilbúin til þess að leggja mikið á okkar uppöldnu leikmenn.
Hversu mikilvægt finnst þér vera að Valsarar fjölmenni og styðji við sitt lið ?
Stuðningur við liðið er gríðarlega mikilvægur. Við finnum það vel þegar vel er mætt á leiki að hvattning stuðningsmanna eru mikil orkuskot þegar komið er inn í erfiða leiki. Valsliðið er af stórum hluta að spila sitt fyrsta tímabil og að fara í sinn fyrsta bikarúrslitaleik og því getur stuðningur skipt sköpum.
Að lokum veldu einn frasa sem að þér finnst eiga best við þennan leik:
Það er alveg ljóst að ekkert annað en sigur kemur til greina













