Þorvaldur Örn í æfingahóp U17 í handbolta

Andri Sigfússon og Jón Gunnlaugur Viggósson þjálfarar U-17 ára landsliðs karla í handbolta völdu á dögunu 27 manna hóp sem kemur saman til æfinga helgarnar 18. - 20. og 25. - 27. júní.

Í hópnum er Valsarinn Þorvaldur Örn Þorvaldsson og óskum við honum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.