Fimm stelpur úr Val í æfingahóp U16 í fótbolta

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 kvenna valdi á dögunum leikmannahóp sem kemur saman til æfinga dagana 21.-24. júní næstkomandi.  Æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir Norðurlandamótið sem fer fram í Danmörku 4.-13. júlí 2021. 

Í hópnum eru fimm Valsarar, þær Fanney Inga Birkisdóttir, Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir, Snæfríður Eva Eiríksdóttir og Telma Steindórsdóttir. 

Við óskum stelpunum góðs gengis á æfingunum og til hamingju með valið.