Í ljósi umræðu undanfarinna daga

Í kjölfar umræðunnar síðastliðnar vikur vill Knattspyrnufélagið Valur upplýsa félagsmenn, iðkendur og foreldra um þann vettvang sem félagið notar við úrvinnslu tilkynninga um einelti eða ofbeldi af einhverju tagi. 

Þessar upplýsingar er einnig að finna undir "Tilkynningar" á heimasíðunni: valur.is/tilkynningar

Starfsfólk Vals styðst við leiðbeiningar og verkferla Íþróttabandalags Reykjavíkur sem hægt er að finna hér: www.ibr.is/leidbeiningar-og-verkferlar

Ef grunur liggur á að einstaklingur hafi orðið fyrir einhverskonar ofbeldi eða óæskilegri hegðun er mikilvægt að sá aðili geti leitað til óháðs aðila með sérþekkingu um meðferð slíkra mála. Valur á einnig í góðu samstarfi við Æskulýðsvettvanginn sem vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Þá hefur félagið einnig átt í góðu samstarfi við Samskiptaráðgjafa en til hans geta allir leitað sem sækja skipulagðar æfingar eða félagsstarf vegna einelti eða ofbeldi sem þeir telja sig hafa orðið fyrir í íþrótta- eða æskulýðsstarfi.

 

Æskulýðsvettvangurinn

Einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir óæskilegri hegðun (kynferðisbrot eða annarskonar ofbeldi) geta tilkynnt mál til fagráðs Æskulýðsvettvangsins. Öllum tilkynningum er tekið alvarlega og þeim komið í réttan farveg.

Í fagráðinu sitja alltaf tveir óháðir sérfræðingar sem hafa þekkingu, menntun og reynslu sem nýtist við meðferð kynferðisbrotamála og eineltismála. Í dag starfa lögfræðingur og sálfræðingur í fagráðinu. Framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins er einnig starfsmaður fagráðsins.

Engin greiðsla er tekin fyrir þjónustu Æskulýðsvettvangsins.

Heimasíða Æskulýðsvettvangsins: aev.is

Smelltu hér til að tilkynna óæskilega hegðun:    Tilkynna ósækilega hegðun á vef Æskulýðsvettvangsins

  

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs

Allir eiga rétt á því að geta stundað sitt íþrótta- og/eða æskulýðsstarf í öruggu umhverfi. Einnig eiga allir iðkendur; börn, unglingar og fullorðnir óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti að geta leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingar.

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem styður við, leiðbeinir og aðstoðar þá sem hafa upplifað einhverskonar ofbeldi eða einelti í slíku starfi. Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi eða einelti í sínu íþrótta- og æskulýðsstarfi eða eru ekki vissir og vilja fá ráðgjöf varðandi slík mál, geta haft samband við Sigurbjörgu með því að senda póst á sigurbjorg@dmg.is eða hringt í síma 839-9100.

Engin greiðsla er tekin fyrir þjónustu samskiptaráðgjafa.

Heimasíða Samskiptaráðgjafa: www.samskiptaradgjafi.is/

Hér er hægt tilkynna áreiti eða einelti hjá samskiptaráðgjafa: samskiptaradgjafi.is/tilkynningaform

 

Barnavernd - Netnámskeið Æskulýðsvettvangsins

Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og afleiðingunum af því.

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. 

Netnámskeið Æskulýðsvettvangsins í barnavernd er öllum opið og ókeypis.

Smelltu hér til þess að opna vef netnámskeiðisins