Keflavík - Valur í Pepsídeild karla

Í kvöld kl.18:00 mætast í Bítlabænum Keflavík og Valur. Þetta er leikur í 17.umferð í Pepsídeild karla og ljóst að um hörkuleik verður að ræða. Fyrri leiknum lauk með öruggum 4-0 sigri okkar manna og þá sigruðum við í fyrra suður með sjó. Við hvetjum alla Valsara til að fjölmenna og hvetja drengina til sigurs.