Kristján og Víðir til úrtaksæfinga með U16

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 karla valdi á dögunum hop sem kemur saman til æfinga dagana 17.-19. janúar næstkomandi. 

Í hópnum eru Valsararnir Kristján Sindri Kristjánsson og Víðir Jökull Valdimarsson og óskum við strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.