Fjórir Valsarar til úrtaksæfinga með U15

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U15 karla í knattspyrnu valdi á dögunum leikmenn sem koma saman til úrtaksæfinga dagana 24.-.26. janúar næstkomandi.
Í hópnum eru fjórir Valsarar, þeir Benedikt Jóel Elvarsson, Kristján O. B. Haagensen, Tómas Johannessen og Thomas Ari Arnarsson. Við óskum strákunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.