Guðrún Hekla og Kolbrún Arna í úrtakshóp U15

Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsþjálfari U15 kvenna valdi á dögunum leikmenn til úrtaksæfinga dagana 26. - 28. janúar næstkomandi. 

Í hópnum eru tvær stelpur úr Val, þær Guðrún Hekla Traustadóttir og Kolbrún Arna Káradóttir.

Við óskum stelpunum góðs gengis á æfingunum og til hamingju með valið.