Fjórar Valsstelpur í æfingahóp U15

Ólafur Ingi Skúlason landsliðsþjálfari U15 ára kvennalandsliðs Íslands valdi á dögunum hóp sem kemur saman til æfinga dagana 28. febrúar - 2. mars næstkomandi.

Í hópnum eru fjórar Valsstelpur, þær Arna Karítas Eiríksdóttir, Ágústa María Valtýsdóttir, Guðrún Hekla Traustadóttir og Kolbrún Arna Káradóttir. 

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.