Eva, Fanney og Sigríður til úrtaksæfinga með U17

Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U17 ára kvenna valdi á dögunum leikmannahóp sem kemur saman til úrtaksæfinga dagana 14. - 16. mars næstkomandi.

Í hópnum eru þrjár stelpur úr Val, þær Eva Stefánsdóttir, Fanney Inga Birkisdóttir og Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir. 

Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.