Knattspyrnufélagið Valur 111 ára í dag

Kæru Valsarar, í dag miðvikudaginn 11. maí fögnum við 111 ára afmæli Vals.

Dagskráin verður með hefðbundnu sniði en klukkan 16:00 verður lagður blómsveigur við styttu séra Friðriks og eftir það verður boðið upp á kaffi og köku í Fjósinu sem stendur til 17:00.

Seinna sama dag tekur karlalið Vals á móti Skagamönnum í Bestu deildinni og því tilvalið að tengja viðburðina saman og skella sér á völlinn um kvöldið.

Mætum og gerum okkur glaðan dag - Áfram Valur!