Glódís María og Kolbrá Una í æfingahóp U16

Magnús Örn Helgason landsiðsþjálfari U16 kvenna valdi á dögunum hóp sem tekur þátt í UEFA Development Tournament.

Mótið fer fram dagana 11.-18. maí og leikur Ísland gegn Portúgal, Spáni og Austurríki, en mótið fer fram í Portúgal.

Í hópnum eru tveir Valsarar, þær Glódís María Gunnarsdóttir og Kolbrá Una Kristinsdóttir. Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis í Portúgal.